Tyggjó er bannað í skólanum og finnst sumum nemendum það ekki svo skemmtileg regla. Aðrir skólar hafa þessa reglu líka en kannski ekki eins stranga og hér í Grunnskólanum á Blönduósi. Ástæðan fyrir banninu er líklega óþrif, truflun á kennslu, kúlusprengingar og fleira af þessu tagi. Sumir skólar á landinu leyfa tyggjó og einnig annað nammi en þá bara utan kennslustofu. Margir nemendur væru alveg til í það að þessari reglu verði breytt. Tyggjó getur leyst andfýlu vandamál unglinga sem hafa gleymt að bursta tennurnar. Síðan finnst þeim það bara gott á bragðið.Guðbjörg 10. b og Árný 9. b
Flokkur: Dægurmál | Facebook
«
Síðasta færsla
|
Næsta færsla
»
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.